Home Fréttir Í fréttum 1,6 milljarða hagnaður

1,6 milljarða hagnaður

100
0
Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt eiga meðal annars ráðandi hlut í flutningafélaginu Samskip, sem er með höfuðstöðvar í Hollandi. Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Fasteignafélag í eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur hagnaðist um 1,6 milljarða króna á árinu 2023.

Festing hf., fasteignafélag í 80% eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, hagnaðist um 1,6 milljarða króna á árinu 2023 samanborið við tæplega 800 milljóna króna árið áður.

Þannig nam matsbreyting fjárfestingareigna 1,4 milljörðum króna og rekstrartekjur tæplega milljarði króna.

Eik fasteignafélag og hluthafar Festingar undirrituðu í nóvember helstu skilmála vegna fyrirhugaðra kaupa Eikar á öllu hlutafé í Festingu.

Heildarvirði (e. Enterprise Value) Festingar í viðskiptunum er áætlað 15,3 milljarðar króna og er fyrirhugað að kaupin verði fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé.

Fasteignir Festingar á Íslandi eru um 43 þúsund fermetrar að stærð í 11 fasteignum og hýsa starfsemi Samkipa um landið og eru að stærstum hluta í Reykjavík en einnig á Akureyri, Dalvík, Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum.

Undanskilin í kaupunum eru dótturfélög Festingar í Noregi og Færeyjum sem eiga einnig fasteignir sem nýttar eru í starfsemi Samskipa. Byggt á áætlun stjórnenda Festingar um EBITDA-hagnað ársins 2025 áætlar Eik að áhrif á EBITDA fasteignafélagsins á ársgrundvelli verði 1.085 milljónir króna.

Skjáskot af Vb.is

Heimild: Vb.is