Félagsmönnum SI er boðið á morgunfund sem Landsbankinn heldur, í samvinnu við Samtök iðnaðarins, fimmtudaginn 13. mars kl. 8.30 í Norðurljósasal Hörpu, þar sem sjónum verður beint að samvinnu opinberra aðila og einkaaðila við innviðaframkvæmdir, einkum á sviði samgöngumála. Húsið opnar kl. 8 með léttum morgunmat.
Dagskrá
- Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, setur fundinn og ræðir möguleika á samvinnu einkaaðila og opinberra aðila við mikilvægar innviðaframkvæmdir.
- Teitur Samuelsen, forstjóri Austureyjar- og Sandeyjarganganna og fyrirhugaðra Suðureyjaganga í Færeyjum, mun fjalla um undirbúning, framkvæmd og fjármögnun þessara miklu innviða.
- Kashif Khan hjá Metlife Investment Management í Bretlandi mun ræða um fjármögnun á innviðaframkvæmdum en Metlife er mjög umfangsmikið á þessu sviði.
- Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, mun fjalla um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi.
Að þessu loknu taka við pallborðsumræður sem Ólöf Skaftadóttir, ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi stýrir. Þátttakendur í pallborði eru:
- Eyjólfur Ármannson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
- Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs.
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
- Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas Ísland.
Við reiknum með að Lilju og Ingólf þurfi lítt að kynna en kynnum hér erlenda gesti okkar til leiks.
Félagið sem Teitur stýrir rekur Austureyjar- og Sandeyjargöngin sem eru tvenn 11 km löng jarðgöng á milli Austureyjar og Sandeyjar í Færeyjum. Gangnagerðin hófst árið 2016 og lauk árið 2023. Verkefnið var fjármagnað annars vegar með eiginfé að fjárhæð 53 milljónir evra og hins vegar með láni að fjárhæð 360 milljónir evra.
Kashif Kahn er forstöðumaður í almennum útlánum hjá MetLife Investment Management, þar sem hann ber ábyrgð á þróun og framkvæmd nýrra viðskipta, auk umsjónar með núverandi fjárfestingum. Kashif gekk til liðs við MetLife árið 2015 og hefur yfir 14 ára reynslu af ráðgjöf og fjárfestingum í innviðalánveitingum.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.
Heimild: SI.is