Home Fréttir Í fréttum Vilja færa skipulagsvald al­þjóða­flug­valla til ríkis

Vilja færa skipulagsvald al­þjóða­flug­valla til ríkis

12
0
Séð yfir Reykjavíkurflugvöll. Til hægri má sjá Hlíðarendahverfið sem Reykjavíkurborg skipulagði með þeim hætti að ein af flugbrautum vallarins varð ónothæf. Arnar Halldórsson

Sjálfstæðismenn vilja færa skipulagsvald yfir alþjóðaflugvöllum á Íslandi frá sveitarfélögum yfir til ríkisins. Þetta kemur fram í stjórnmálaályktun sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti um síðustu helgi.

„Skipulagsvald yfir landi sem notað er til varnarmála og reksturs alþjóðaflugvalla skal vera á forræði ríkisins,“ segir í samþykkt sjálfstæðismanna.

Keflavíkurflugvöllur nýtur raunar sérstöðu í skipulagsmálum. Hann er eini alþjóðaflugvöllur landsins þar sem skipulagsvaldið er ekki á forræði viðkomandi sveitarfélaga.

Þar hefur Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar, sem heyrir undir innviðaráðherra, umsjón með skipulagsmálum á sveitarstjórnarstigi og veitir lokaákvörðun um deili- og aðalskipulag flugvallarsvæðisins. Ráðherra skipar alla fimm nefndarmenn, þar af einn samkvæmt tilnefningu frá utanríkisráðuneyti og tvö samkvæmt tilnefningu sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Skipulagsvald Keflavíkurflugvallar er alfarið hjá ríkinu.
Vilhelm Gunnarsson

Skipulagsvald hinna þriggja alþjóðaflugvalla landsins heyrir undir viðkomandi sveitarfélög. Þeir eru Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur og Egilsstaðaflugvöllur. Samkvæmt samþykkt landsfundarins vill Sjálfstæðisflokkurinn að það sama gildi um þessa þrjá flugvelli og Keflavíkurflugvöll; að ríkið fari með skipulagsvald þeirra allra.

Leiða má líkur að því að þau áralöngu átök, sem verið hafa um Reykjavíkurflugvöll, einkum á milli borgarstjórnar Reykjavíkur og ríkisvaldsins, séu kveikjan að samþykkt sjálfstæðismanna. Nýjasta dæmið er sá dráttur sem varð á því að borgaryfirvöld létu lækka trjágróður í Öskjuhlíð, sem leiddi til þess að einni flugbraut vallarins var lokað.

Lokun flugbrautarinnar varð til þess að bæjar- og sveitarstjórar tíu landsbyggðarsveitarfélaga, sem mikið eiga undir flugsamgöngum, birtu sameiginlega grein á Vísi í síðasta mánuði þar sem þeir mótmæltu því að trjágróður í Öskjuhlíð nyti forgangs þegar um líf og heilsu fólks utan af landi væri að ræða. Sögðu að öllum mætti vera ljóst að Reykjavíkurflugvöllur færi ekki burtu úr Vatnsmýrinni á næstu árum eða jafnvel áratugum. Ennfremur að allt tal um að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur lýsti skilningsleysi á aðstöðu þeirra sem byggju úti á landi.

Hugmyndin um að ríkið taki yfir skipulagsvald allra alþjóðaflugvallanna er ekki ný. Þannig varpaði Njáll Trausti Friðbertsson, þáverandi bæjarfulltrúi á Akureyri og núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þessari hugmynd fram í bæjarstjórn Akureyrar árið 2015. Njáll var á sínum tíma annar forsvarsmanna Hjartans í Vatnsmýri, undirskriftasöfnunar til stuðnings flugvellinum.

Heimild: Visir.is