Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 18.03.2025 Snorrastaða­vegur (5610), brú á Kaldá við Eldborg

18.03.2025 Snorrastaða­vegur (5610), brú á Kaldá við Eldborg

46
0
Hnappadalur. Mynd: wikipedia.org

Vegagerðin býður hér með út hönnun, framleiðslu/smíði og uppsetningu nýrrar 33,2 m langrar forsmíðaðar yfirbyggingar á brú yfir Kaldá við Snorrastaði á Snorrastaðavegi.  Yfirbyggingin skal forsmíðuð og hífast, í einu lagi eða einingum, á fyrirliggjandi brúarstólpa og festast/tengjast þeim. Yfirbygging brúar skiptist í 3,0 m breiða akbraut og 1,5 m breiða gönguleið auk bríka beggja vegna fyrir H2 vegrið.

 

Helstu magntölur eru:
Forsmíðuð yfirbygging brúar
Heild

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1 október 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 3. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. mars 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.