Home Fréttir Í fréttum Vilja styrkja við­gerðir á sögu­frægum byggingum

Vilja styrkja við­gerðir á sögu­frægum byggingum

30
0
Loftmynd af Reykjavík. Vísir/Einar

Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.

<>

Fram kemur í auglýsingunni að umsóknir séu einungis mótteknar á þar til gerðu eyðublaði á mínum síðum á vef Reykjavíkur. Umsóknarfresturinn sé til föstudagins 14. mars.

Eftirfarandi upplýsingar skuli koma fram í umsókn:

  1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum
  2. Tímaáætlun
  3. Kostnaðaráætlun (með sundurliðun ef um er að ræða marga þætti)
  4. Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til
Séð yfir litrík hús í Reykjavík.
Reykjavík

Frekari upplýsingar séu veittar af Húsverndarstofu sem er með opinn símatíma á miðvikudögum kl. 15–17 í síma 411 6333. Einnig megi senda tölvupóst á husverndarstofa@reykjavik.is.

Auglýsingin.

Heimild: Visir.is