Vegagerðin býður hér með út vinnslu á klæðingarefni á Vestfjörðum árið 2025, alls um 2.900 m3.
Hálkuvarnarefni 2/6
|
500 m3
|
Klæðingarefni 4/8
|
500 m3
|
Klæðingarefni 8/16
|
1.900 m3
|
Verki skal að fullu lokið 10. maí 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 17. febrúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. mars 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.