Home Fréttir Í fréttum 24.02.2025 Markaðskönnun (RFI) – Meðferðarkjarni innanhússfrágangur

24.02.2025 Markaðskönnun (RFI) – Meðferðarkjarni innanhússfrágangur

28
0
Nýr Landspítali

Nýr Landspítali ohf. ( NLSH) óskar eftir upplýsingum (RFI) um hæfa aðila sem hafa áhuga væntanlegu útboði á innanhúsfrágangi Meðferðarkjarna, frá kjallara (K2) til og með fjórðu hæðar. Gert er ráð fyrri að verkframkvæmd hefjist árið 2025 og er það ósk verkkaupa að verkinu ljúki fyrir árslok 2028.

<>

Frágangur á neðri hæðum K2 – 4H er allt að 55 þúsund fermetrar, sem ræðst af eðli uppskiptingar verkhluta sbr. útboðsgögn. Á neðri hæðum verða m.a. bráðamóttaka, aðgerðar- og einangrunarstofur, myndgreining, lyfjameðhöndlun, starfsmannaaðstaða og umfangsmikil stoð- og tæknikerfi.

Gerð er krafa um vandaðan frágang og búnað í húsinu og því horft til reynslu og getu aðila til að annast fyrirhugaðar framkvæmdir. Einnig er gerð krafa um reynslu af framkvæmdum við sjúkrahús af sambærilegri stærðargráðu enda byggir frágangur og flækjustig innviða og tæknikerfa sjúkrahúsa á sérhæfðri þekkingu.

Verkefnið er unnið í formi upplýsingalíkana mannvirkja (Building Information Modeling – BIM). Verkefnið er unnið samkvæmt stefnu stjórnvalda í mannvirkjagerð og sjálfbærni. Stefnt er að því að byggingin verði vottuð sem vistvænt mannvirki samkvæmt alþjóðlega vottunarkerfinu BREEAM.

Auglýst: 06.02.2025 kl. 00:00
Skilafrestur 24.02.2025 kl. 13:00
Opnun tilboða: 24.02.2025 kl. 13:15

Sjá frekar.