Isavia bíður með að færa flugvallargirðingu í Skerjafirði þar til nýr samgönguráðherra hefur tekið afstöðu til þess hvort svæðið umdeilda verði afhent Reykjavíkurborg til nýrra húsbygginga. Ráðherrann segir alveg á hreinu að ekkert verði gert sem grafi undan tilvist Reykjavíkurflugvallar.
Fjallað var um málefni flugvallarins í fréttum Stöðvar 2. Þótt komin virðist niðurstaða um það hvernig farið verður með trjágróðurinn í aðflugslínu flugvallarins í Öskjuhlíð bíður næsta deilumál; hvort borgin fái flugvallarlandið í Skerjafirði afhent.
![](http://byggingar.is/wp-content/uploads/2025/02/05.02.2025-Dagur-B.-Eggertsson-og-Katrin-Juliusdottir.jpg)
Reykjavíkurborg
Tólf ár eru liðin frá því þáverandi fjármálaráðherra seldi Reykjavíkurborg landið. Borgin er búin að skipuleggja svæðið og byrjuð að úthluta lóðum. Hagsmunaaðilar innan fluggeirans með öryggisnefnd atvinnuflugmanna í fararbroddi telja hins vegar að húsbyggingar svo nærri flugbrautum muni skerða rekstraröryggi vallarins.
Síðastliðið haust gerðist það að Svandís Svavarsdóttir, þáverandi innviðaráðherra, fyrirskipaði Isavia að afhenda borginni flugvallarlandið. En Svandís sat ekki nógu lengi á ráðherrastól til að fylgja ákvörðun sinni eftir. Isavia beið átekta og hefur núna lagt málið í hendur nýs samgönguráðherra.
En ætlar hann að láta þá ákvörðun forvera síns standa að flugvallargirðingin skuli færð?
![](http://byggingar.is/wp-content/uploads/2025/02/05.02.2025-Flugvallarlandid-umdeilda-i-Skerjafirdi.jpg)
KMU
„Þetta er bara í skoðun, sko. Aðalatriðið er það að Reykjavíkurflugvöllur, hann mun verða Reykjavíkurflugvöllur. Hann mun vera áfram á sama stað og það eru engar áætlanir um það að hann fari burtu,“ svarar Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
„Og það er mjög mikilvægt að tryggja flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli, á þessum tveimur brautum sem eru fyrir hendi, og taka niður trjágróður þegar þess þarf. Að þessi trjágróður sé ekki að vaxa upp í hindranafleti og það þurfi þá að takmarka umferð á einni brautinni. Eða loka. Það er algjörlega óásættanlegt.“
![](http://byggingar.is/wp-content/uploads/2025/02/05.02.2025-Nyi-Skerjafjordur.jpg)
Reykjavíkurborg
-En telur þú þá koma til greina að endurskoða þessi áform um að borgin fái Skerjafjarðarsvæðið?
„Það á bara eftir að koma í ljós. Þetta verður allavega ekki framkvæmd sem grefur undan Reykjavíkurflugvelli. Það eru alveg hreinar línur með það.
Og allar framkvæmdir í kringum Reykjavíkurflugvöll eiga ekki að grafa undan tilvist Reykjavíkurflugvallar,“ segir ráðherrann.
Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi innviðaráðherra, hafði áður fallist á að borgin fengi Skerjafjarðarlandið og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, sagði skipulag þess eitt hið verðlaunaðasta.
Heimild: Visir.is