Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Þorláks­höfn – Suður­varar­bryggja, þekja og lagn­ir 2025

Opnun útboðs: Þorláks­höfn – Suður­varar­bryggja, þekja og lagn­ir 2025

146
0

Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið „Þorlákshöfn – Suðurvararbryggja – Þekja og lagnir 2025“.

<>
Helstu verkþættir eru:
Grafa skurði og leggja vatnslagnir, seiðislagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.
Steypa undirstöður fyrir ljósamastur og rafmagnskassa
Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.
Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir malbik.
Malbika 5500 m2, tvöfalt lag.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  20. janúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. febrúar 2025.

Ekki verða haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.