Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 17.02.2025 Vivaldivöllurinn – Endurnýjun á gervigrasi

17.02.2025 Vivaldivöllurinn – Endurnýjun á gervigrasi

14
0
Mynd: Seltjarnarnes.is

Bæjarsjóður Seltjarnarness óskar eftir tilboðum í verkið Seltjarnarnes – Vivaldivöllurinn – Endurnýjun á gervigrasi.

<>

Verkið felst í rifi og flutning á geymslusvæði á núverandi gervigrasi á knattspyrnuvelli og æfingavelli á íþróttasvæðinu og endurnýjun gervigrasyfirborðs á völlunum tveimur.

Helstu þættir verksins eru:

  • Rif og flutningur á núverandi yfirborði alls um 11.320m2
    • Keppnisvöllur 74x111m
    • Æfingavöllur 47x66m
  • Nýtt gervigrasyfirborð alls um 11.320m2
    • Keppnisvöllur 74x111m
    • Æfingavöllur 47x66m

Skiladagar verksins eru eftirfarandi:

  • Verklok keppnisvallar – 26. maí 2025
  • Verklok æfingavallar – 2. júní 2025

Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds, á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með miðvikudeginum 29. janúar 20025.