Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur sent úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála bréf þar sem hann viðurkennir að mistök hafi verið gerð við útgáfu byggingarleyfisins við Álfabakka 2 og leggur til að hætt verði við starfsemi kjötvinnslunnar í húsinu.
Úrskurðarnefndin er með stjórnsýslukæru Búseta til umfjöllunar þar sem krafist er verkstöðvunar. Byggingarfulltrúi og meirihluti borgarstjórnar hafa fram að þessu hafnað kröfu minnihlutans, íbúa í Árskógum 7 og Búseta um verkstöðvun.
Byggingarfulltrúi viðurkennir að fara hefði þurft fram mat á umhverfisáhrifum vegna kjötvinnslunnar í húsinu. Hvaða áhrif þetta kann að hafa á úrskurðinn kemur í ljós á næstu dögum, en niðurstöðu nefndarinnar er að vænta í febrúar.
Í bréfi byggingarfulltrúa til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að við nánari skoðun á aðaluppdráttum hafi komið í ljós misræmi er á milli samþykktra aðaluppdrátta og skráningartöflu. Jafnframt skortir að gera betur grein fyrir rými sem áætlað er fyrir kjötvinnslu. Þá liggja ekki fyrir upplýsingar um hvort tilkynnt hafi verið til Skipulagsstofnunar um fyrirhugaða kjötvinnslu og líkleg umhverfisáhrif hennar.
Samkvæmt 1. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana getur pökkun og niðursuða á jurta- og dýraafurðum, þar sem gólfflötur bygginga er a.m.k. 1.000 m2, verið háðar umhverfismati, en gólfflötur kjötvinnslunnar í Álfabakka er 3.200 fermetrar.
Byggingarfulltrúi viðurkennir að óheimilt hafi verið að gefa út byggingarleyfi fyrir kjötvinnsluna fyrr en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum lægi fyrir eða ákvörðun stofnunarinnar um að framkvæmd sé ekki matsskyld. Það sé svo hlutverk Skipulagsstofnunar að taka ákvörðun um hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati samkvæmt lögunum.
Kjötvinnslan hefði átt að fara í umhverfismat
Það er mat byggingarfulltrúa að álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat fyrirhugaðrar kjötvinnslu hefði átt að liggja til grundvallar við afgreiðslu umsóknar um breytingu á útgefnu byggingarleyfi. Byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um tilkynningu félagsins til Skipulagsstofnunar um fyrirhugaða kjötvinnslu áður en sótt var um fyrrgreinda breytingu á byggingarleyfinu. Að mati byggingarfulltrúa er ekki nægjanlega skýrt á aðaluppdráttum hvaða svæði innan hússins eru ætluð undir kjötvinnslu, þ.e. hvaða hlutar af rýminu falla undir kjötvinnslu og eru órjúfanlegur hluti hennar. Er óskað nánari skýringa á þessu.
Í bréfi byggingarfulltrúa er einnig vísað í umsögn skipulagsfulltrúa frá 10. janúar 2023 þar sem kemur fram að umfang og staðsetning starfseminnar skipti máli þar sem umfangsmikill matvælaiðnaður eigi almennt að fara fram á athafnasvæði skv. skilgreiningu landnotkunar í skipulagsreglugerð. Þá segir að almennt sé heimilt að vera með hreinlega atvinnustarfsemi og léttan iðnað á miðsvæðum, sem kjötvinnsla getur fallið undir.
Sérstaklega er tekið fram að við hönnun og nánari útfærslu starfsemi skuli gætt að umhverfisáhrifum vegna nálægðar við íbúðarbyggð í Suður-Mjódd. Hér þarf að huga að því að kjötvinnslan sé hluti af annarri ráðandi starfsemi á viðkomandi lóð og umfang hennar þarf að taka mið af því. Að mati byggingarfulltrúa er álitamál hvort kjötvinnsla af því umfangi sem samþykktir aðaluppdrættir heimila samræmist skipulagsáætlunum sem gilda um Álfabakka 2A.
Í lok bréfsins til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að byggingarfulltrúi telji verulegar líkur á því að útgefið byggingarleyfi fyrir kjötvinnslu, að því umfangi sem samþykkt hefur verið, brjóti í bága við gildandi skipulag fyrir Álfabakka 2A. Við slíkar aðstæður geti byggingarfulltrúi stöðvað framkvæmdina. Þá er einnig bent á að byggingarfulltrúa kunni að vera heimilt að breyta eða fella byggingarleyfið úr gildi.
Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hafnaði tillögu minnihlutans á borgarstjórnarfundi þann 7. janúar sl. um framkvæmdastopp við Álfabakka 2. Nú þegar byggingarfulltrúi hefur viðurkennt að mistök hafi verið gerð við útgáfu byggingarleyfisins og lagt til að kjötvinnslan verði ekki í húsinu er komin upp ný staða í málinu og á meðan er beðið eftir úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.