Home Fréttir Í fréttum Vilja stöðva framkvæmdir tafarlaust

Vilja stöðva framkvæmdir tafarlaust

59
0
Vöruhúsið við Álfabakka 2. mbl.is/Karítas

Björn Gísla­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins hyggst leggja það fyr­ir borg­ar­stjórn að meta kostnað við sviðsmynd­ir tengd­ar framtíð vöru­húss­ins við Álfa­bakka.

<>

Til­lög­unni er ætlað að tryggja fag­legt og heild­stætt mat á mögu­leg­um lausn­um varðandi stál­grind­ar­húsið.

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn legg­ur ríka áherslu á að fram­kvæmd­ir verði stöðvaðar taf­ar­laust á meðan kostnaðarmat og vinna við far­sæla lausn fer fram.

Björn Gísla­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins flyt­ur til­lögu þess efn­is á fundi borg­ar­stjórn­ar á þriðju­dag­inn í næstu viku.

Í til­lög­unni, sem Morg­un­blaðið hef­ur und­ir hönd­um, er lagt til að eft­ir­tald­ar sviðsmynd­ir verði metn­ar: Flutn­ing­ur hús­næðis­ins á aðra hent­uga lóð, sem ekki er í miðri íbúðabyggð, ásamt öll­um til­heyr­andi kostnaði, svo sem bóta­greiðslum, bygg­ing­ar­rétt­ar­gjöld­um, flutn­ings- og lög­fræðikostnaði; finna vöru­hús­inu næst íbúðablokk­inni ann­an stað; óbreytt ástand þar sem húsið stend­ur áfram á nú­ver­andi stað, með til­liti til mála­ferla og lög­fræðikostnaðar tengds þeim, hugs­an­legra bóta­greiðslna og áhrifa á um­hverfið og ná­grenni; breyt­ing­ar á hús­næðinu sem miða að því að lág­marka áhrif þess á um­hverfið og lífs­gæði íbúa í ná­grenn­inu; aðrar sviðsmynd­ir sem unnt er að leggja fram til lausn­ar mál­inu.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Heimild:Mbl.is