Home Fréttir Í fréttum 18.02.2025 Hring­vegur (1), hring­torg við Lóns­veg

18.02.2025 Hring­vegur (1), hring­torg við Lóns­veg

69
0
Lónsbakki í Hörgársveit. Mynd: Vikubladid.is

Vegagerðin, sveitarfélagið Hörgársveit og Norðurorka hf. bjóða hér með út gerð hringtorgs við Lónsbakka, vegtenginga og stíga. Innifalið í verkinu er gerð á nýju ræsi fyrir Lónsá sem og lagning hitaveitulagna.

<>

Helstu magntölur í verkinu eru:

Jarðvinna, vega- og stígagerð
Rif malbiks
3.000 m2
Bergskeringar
410 m3
Fyllingar
9.000 m3
Fláafleygar
5.200 m3
Ofanvatnsræsi
300 m
Brunnar og niðurföll
10 stk.
Styrktarlag
2.500 m3
Burðarlag
1.000 m3
Jöfnunarlag undir malbik (Burðarlag)
1,250 m2
Malbik
8.000 m2
Kantsteinar
576 m
Vegrið
250 m
Umferðarmerki
32 stk.
Götulýsing, skurðgröftur og strengur
600 m
Ljósastaurar, uppsetning
17 stk.
Ídráttarrör
435 m
Veitufyrirtæki, stofnlögn hitaveitu
Jarðvinna vegna hitaveitulagna
850 m3
Einangruð stálrör DN300
100 m
Brunnar hitaveitu
1 stk.

Verki skal að fullu lokið 1. nóvember 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 28. janúar 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. febrúar 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.