Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að heilbrigðisyfirvöld horfi til Fossvogs þegar kemur að framtíðaruppbyggingu fyrir geðheilbrigðisþjónustu. Sent hafi verið erindi til borgarinnar þess efnis.
Borgaryfirvöld hafa aftur á móti uppi áform um að byggingu íbúabyggðar sunnan við Landspítalann í Fossvogi.
Hins vegar flæki málin að samhliða sé vinna í gangi hjá ríkinu þar sem meta á þörf á Fossvogsspítala sem framtíðarhúsnæði undir heilbrigðisþjónustu.
„Það er vinna á vegum borgarinnar sem gengur út á það hvort tveir staðir nærri Fossvogsspítala gangi upp. Við eigum von á því að svör við því á næstu vikum,“ segir Alma.
Heimild: Mbl.is