Home Fréttir Í fréttum Völlurinn geti orðið ó­not­hæfur á köflum

Völlurinn geti orðið ó­not­hæfur á köflum

49
0
Guðmundur Tómas Sigurðsson er flugrekstrarstjóri Icelandair. Vísir/Vésteinn

Flugrekstrarstjóri segir alvarlegt ef aðeins ein flugbraut verður opin á Reykjavíkurvelli vegna trjáa í Öskjuhlíð. Við ákveðið veðurskilyrði geti völlurinn orðið ónothæfur. Framkvæmdir við brúarsmíði geti ógnað einu brautinni sem eftir standi. Ríki og borg verði að finna lausn.

<>

Fyrir helgi beindi Samgöngustofa þeim tilmælum til ISAVIA að loka skyldi annarri tveggja flugbrauta Reykjavíkurflugvallar. Ástæðan er sú að Reykjavíkurborg hefur ekki fellt 1.400 tré í Öskjuhlíð, sem Samgöngustofa segir nauðsynlegt til að tryggja flugöryggi.

Við þetta tilefni sagði borgarstjóri að áhyggjuefni sé að starfsemi vallarins verði skert, en enginn rökstuðningur þess efnis að flugöryggi batnaði við það að trén yrðu felld hefði komið fram. Ekkert formlegt erindi hafi borist með ósk um að trén yrðu öll felld, og sagðist hann ekki skilja „æðibunugang“ í stjórnsýslu Samgöngustofu.

Stór hluti innanlandsflugs félagsins fer um völlinn, sem og flug til Grænlands og Færeyja. Auk þess er völlurinn varaflugvöllur stórs hluta millilandaflugsflota Icelandair.

„En það erum ekki bara við sem eigum aðkomu að þessum velli. Þetta myndi hafa neikvæð áhrif á alla aðra flugrekendur, hvort sem það eru flugskólar eða þeir sem sinna sjúkraflugi og þess háttar.“

Finna verði varanlega lendingu
Icelandair hafi átt góð samskipti við stjórnvöld í málinu fram að þessu.

„En það er komið að aðgerðum, að hlutaðeigandi aðilar stigi inn í málið og gangi frá þessu vandamáli. Helst í eitt skipti fyrir öll.“

Þessi mynd sýnir það svæði sem hin umdeildu tré þekja.
Grafík/Hjalti

Ekki skipti máli hvort trén verði fjarlægð eða lækkuð að hans mati.

„Það er annarra að meta það en það er klárt að hindrunin eru þessi tré. Það þarf að finna einhvern flöt á því hvernig það er afgreitt.“

Fossvogsbrú geti ógnað síðustu brautinni
Framkvæmdir við Fossvogsbrú eiga að hefjast á þessu ári, en útlit er fyrir að byggingakranar sem verði notaðir til verksins geti skapað hindranir varðandi brautina sem stendur eftir opin.

„Það er sjálfsögðu grafalvarlegt mál, bæði fyrir flugöryggi og alla sem að vellinum koma.“

Verulega sé tekið að þrengja að vellinum, en staðsetning hans hefur verið umdeild um áratugaskeið.

„En það er alveg ljóst að með hverri aðgerðinni sem gripið er til, hvort sem það er lokun á flugbraut, sem hefur þegar gerst eins og við sáum fyrir nokkrum árum síðan þegar einni af flugbrautunum var varanlega lokað. Ef ein bætist svo við þá stendur ein eftir. Við erum komin á slæman stað ef það er farið að ógna henni líka.“

Heimild: Visir.is