Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í fyrirspurn Alva fasteigna ehf. um að breyta fasteigninni Rauðarárstíg 27-29 í gistihús.
Rauðarárstígur 27-29 er rauðbrúnt hús sem margir kannast við. Utanríkisráðuneytið hafði húsnæðið á leigu en ráðuneytið hefur sem kunnugt er flutt starfsemi sína í nýja Landsbankahúsið í miðborginni.
Eigandi hússins sendi sumarið 2023 erindi til byggingarfulltrúa Reykjavíkur þar sem sótt er um leyfi til að innrétta 18 íbúðir á 2.-4. hæð. Byggingarfulltrúinn sendi erindið til skipulagsfulltrúa og óskaði umsagnar um það. Tók skipulagsfulltrúi jákvætt í það.
Nú hefur málið tekið aðra stefnu. Ekki voru sendar inn teikningar af íbúðum heldur áformar eigandinn nú að innrétta gistieiningar í húsinu.
Fyrirspurnin var tekin til afgreiðslu á fundi skipulagsfulltrúa. Fram kemur í umsögn verkefnisstjóra skipulagsfulltrúa að húsið á lóð nr. 27-29 við Rauðarárstíg sé veitinga- og skrifstofuhúsnæði á fjórum hæðum byggt árið 1987 skv. fasteignaskrá.
Óskað er eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess að fá að innrétta gistiheimili eða hótel á 2.-4. hæð. Að auki er óskað eftir því að fá að vera með veitingarekstur í fremri hluta jarðhæðar en gistirými í aftari hluta jarðhæðarinnar.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is