Home Fréttir Í fréttum Þak fauk nánast af hlöðu

Þak fauk nánast af hlöðu

51
0
Björgunarsveitarmenn komu böndum á sperrur og þverbönd í hlöðunni. Landsbjörg

Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út fyrr í dag vegna hættu á að þak á hlöðu á bæ rétt suður af Hvolsvelli myndi fjúka. Vel tókst til að tryggja að þakið lyftist ekki af, en 10 manns komu að verkinu sem var lokið um hálf þrjú í dag.

<>

Frá þessu er greint í tilkynningu Landsbjargar.

„Björgunarsveitarfólk fór á staðinn og náði að koma böndum á sperrur og þverbönd inni í hlöðunni og þannig tryggja það að þakið lyftist ekki af í þeim suðvestan vindi sem þarna var.“

Veðrið hefur leikið landsmenn grátt þennan jóladag, en flestum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst það sem af er degi, og innanlandsflug liggur niðri. Ófært er um Hellisheiði og Þrengslaveg.

Þá lá við að bátur slitnaði frá bryggju við Akraneshöfn vegna hvassviðris.

Heimild: Visir.is