Home Fréttir Í fréttum 04.02.2025 Þjónusta iðnaðarfólks í Árborg

04.02.2025 Þjónusta iðnaðarfólks í Árborg

53
0
Mynd: Sveitarfélagið Árborg.

Sveitafélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið Þjónusta iðnaðarfólks í Árborg í samræmi við útboðsgögn.

<>

Um er að rammasamningsútboð þar sem leitað er tilboða í þjónustu iðnaðarfólks sem koma til með að taka að sér einstök verkefni í heild eða að vinna í verkefnum með starfsfólki Árborgar. Útboði er skipt upp í átta mismunandi flokka.

Útboðsgögn verða afhend í útboðskerfinu Ajour þar sem bjóðendur geta sótt gögn frá og með 19. desember 2024. Bjóðendur skrá sig inn á vef og hlaða niður gögnum.

https://arborg.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/321cf972-937d-4e4a-a91f-dc6603002903

Notkunarleiðbeiningar um kerfið má sjá hér https://help.ajoursystem.com/astopic/tender/

Tilboði skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um.

Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar.

Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn. Skilafrestur tilboðs og opnunartími er 4. febrúar 2025 kl. 13:00.

Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar

Sjá frekar.