jöldi fólks lagði leið sína á Kaupvangstorg á Akureyri í gær þegar kirkjutröppurnar 112 voru opnaðar að nýju eftir umtalsverðar framkvæmdir og endurbyggingu trappanna. Tröppurnar hafa verið lagðar granítflísum og er nú hiti í öllum þrepum og stigapöllum. Þá hefur verið sett ný lýsing í handrið og á hliðarpósta.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ en þess hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu að kirkjutröppurnar opni að nýju. Töluverðar tafir hafa verið á framkvæmdinni en fjallað var um endurbygging trappanna í kvöldfréttum Stöðvar 2 í fyrrasumar. Þá stóð til að tröppurnar yrðu opnaðar í október 2023. Það varð hins vegar ekki að veruleika fyrr en í gær.
„Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, ávarpaði fólkið og lýsti ánægju sinni með nýju tröppurnar, Barnakórar Akureyrarkirkju undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur söng tvö lög og síðan klippti Ásthildur á borða og mannfjöldinn fór í skrúðgöngu upp að Matthíasarkirkjunni með kyndil- og fánabera úr Skátafélaginu Klakki í fararbroddi á meðan organistinn Eyþór Ingi Jónsson lék á kirkjuorgelið af mikilli list,“ segir í tilkynningunni.
Heimild: Visir.is