Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu Hegranesvegar í Skagafirði, frá Ási að vegamótum við Sauðárkróksbraut. Lengd útboðskaflans er 5,09 km.
Helstu magntölur eru:
- – Efnisvinnsla 0/22 mm 7.430 m3
- – Skering 3.550 m3
- – Fylling 15.630 m3
- – Fláafleygar 7.480 m3
- – Ræsalögn 14 m
- – Endafrágangur ræsa 4 stk.
- – Neðra burðarlag 24.140 m3
- – Efra burðarlag 5.710 m3
- – Tvöföld klæðing 32.710 m2
- – Frágangur fláa 35.440 m2
Verktaki skal ljúka öllum verkþáttum nema lokafrágangi fláa, útlögn efra burðarlags og útlögn klæðingar fyrir 1. nóvember 2016. Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2017.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 23. maí 2016. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. júní 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann sama dag.