Home Fréttir Í fréttum FORAUGLÝSING: Færanlegar kennslustofur fyrir skólaþorp í Laugardal

FORAUGLÝSING: Færanlegar kennslustofur fyrir skólaþorp í Laugardal

37
0
Mynd: Reykjavíkurborg 

Umhverfis- og skipulagssvið fyrirhugar að bjóði út færanlegar kennslustofur sem á að koma fyrir næsta vor / sumar á lóð Reykjarvíkurborgar við Reykjaveg í Laugardalnum.

<>

Að svo stöddu er um að ræða byggingu og setja upp 2 færanlegar kennslustofur auk tengiganga. Endanlegur fjöldi færanlegra kennslustofa getur þó orðið 11.

Kennslustofurnar skulu uppfylla öll nauðsynleg skilyrði til þess að öðlast byggingarleyfi- og skulu þær uppfylla allar kröfur byggingareglugerðar hvað kennsluúrræði varðar.

Hver stofueining er um 80 m², á einni hæð. Endanlegt umfang tengiganga á eftir að skýrast. Stofueiningarnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja stofueiningu á að vera hægt að flytja í heilu lagi og setja niður á lóðina og tengja saman með tengigangi. Í hverri stofueiningu skal gera ráð fyrir skólastofu fyrir 20 nemendur, salerni og forstofu.

Helstu verkþættir eru:

  • Arkitektahönnun að hálfu birgja- og samræmi við arkitekt verkkaupa
  • Verkfræðihönnun að hálfu birgja- og samræmi við hönnuði verkkaupa
  • Brunahönnun
  • Hljóðhönnun
  • Smíði á stofueiningum (Fullnaðarfrágangur innan sem utan)
  • Smíði á föstum innréttingum, ásamt uppsetningu
  • Jarðvinna
  • Uppsteypa
  • Flutningur á lóð í Laugardal
  • Uppsetning á lóð í Laugardal
  • Tenging við veitur
  • Byggingastjórnun
  • Lokaúttekt- og öll tilskilin leyfi fyrir notkun
  • Frágangur lóðar við færanlegar kennslustofur

Stefnt er að því að útboðið verði auglýst í lok janúar / byrjun febrúar 2025.

Heimild: Reykjavik.is