Home Fréttir Í fréttum Fyrsta blokkin rís í Móahverfi á Akureyri

Fyrsta blokkin rís í Móahverfi á Akureyri

103
0
Lautarmói 1. Mynd frá BE húsbyggingum.
Fyrsta blokkin er risin í Móahverfinu – Lautarmói 1. Í Lautarmóa 1-3-5 verða 50 íbúðir samtals, með sameiginlegum bílakjallara. Áætluð afhending er 2026.
Móahverfi er staðsett fyrir ofan Síðuhverfi á Akureyri. Þar verða um 1.100 íbúðir sem hýsa munu um 2.400 manns. Deiliskipulag var samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar 10. maí 2022.
Um er að ræða nýtt íbúðahverfi sem nær yfir um 45 hektara lands þar sem er skipulögð byggð með bæði fjölbýli og sérbýli.
Heimild: Akureyri.is