F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Endurnýjun vallarlýsingar á æfingavelli Víkings Safamýri, EES útboð 16078
Verkið felst í að útvega, setja upp og prófa flóðlýsingu á knattspyrnuvöll með gervigrasi á íþróttasvæði Víkings í Safamýri. Verktaki skal hanna og skila útreikningum sem sýna að lágmarkskröfum sé náð. Verktaki skal hanna lýsinguna í samræmi við kröfur staðalsins ÍSTEN 12193 um lýsingu á fótboltavelli utanhúss skv. Class I.
Ábyrgðartími ljósabúnaðar skal vera að lágmarki 10 ár.
Gert er ráð fyrir allt að sex 18 m háum ljósamöstrum utan öryggissvæðis vallarins
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00, 3. desember 2024. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 14. janúar 2025.