- Eldgos sem hófst klukkan 23:14 á Sundhnúksgígaröðinni virðist hafa náð hámarki í nótt.
- Nokkuð hefur dregið úr hraða hraunflæðisins í nótt.
- Áköf skjálftahrina byrjaði um klukkan hálf ellefu í gærkvöld.
- Sprungan er 3 kílómetra löng og nær frá Sýlingarfelli norður fyrir Stóra-Skógfell.
- Eldgosið er talsvert minna en eldgosið í ágúst.
- Það vekur athygli Veðurstofunnar að skjálftavirkni jókst ekki vikurnar fyrir gos líkt og í síðustu gosum.
- Þetta gæti bent til þess að munstur eldgosanna sé að breytast.
- Eldgosið er norðan vatnaskila svo að hraun rennur ekki í átt að Grindavík.
- Innviðir, utan Grindavíkurvegar, eru ekki í bráðri hættu miðað við takt eldgossins fyrstu klukkutímana.
- Rýming Grindavíkur og Bláa lónsins gekk vel fyrir sig.
Heimild: Ruv.is