Menningarhús í Skagafirði
Hönnun nýbyggingar og endurbóta á eldra húsnæði
Hönnunarsamkeppni – Forval
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir umsóknum hönnunarhóps um þátttökurétt í lokaðri hönnunarsamkeppni vegna nýs Menningarhúss í Skagafirði að Faxatorgi á Sauðárkróki. Nýtt menningarhús mun annars vegar samanstanda af endurgerðu núverandi Safnahúsi og hins vegar nýbyggingu, samtals 2.241 m2.
Forvalsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds, á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með þriðjudeginum 12. nóvember 2024.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en föstudaginn 13. desember kl. 14:00.