Hafnarfjarðarbær óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á Hamranesskóla í Hafnarfirði.
Í byggingunni er gert ráð fyrir húsnæði fyrir 2ja hliðstæðu grunnskóla, 4ra deilda leikskóla auk aðstöðu til tónlistarkennslu, samtals um 9.000 m2.
Gert er ráð fyrir að skólinn verði byggður í þrem áföngum og skil hvers áfanga verði sem næst 3.000 m2.
Tímasetning á skilum hvers áfanga er 1. júlí 2026, 1. júlí 2027 og 1. júlí 2028.
Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum og er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup. Að loknu forvali mun verkkaupi velja allt að fimm fyrirtæki úr hópi hæfra umsækjenda til þátttöku í lokuðu útboði.
Hér er um rafrænt útboð er að ræða og eru forvalsgögn aðgengileg á útboðsvef VSB verkfræðistofu https://vsb.ajoursystem.net/tender
Skilafrestur og opnun umsókna um þátttöku er fimmtudaginn 12. desember 2024, kl. 11.00.