Home Fréttir Í fréttum „Staðan er bara sú að það verður slys hérna“

„Staðan er bara sú að það verður slys hérna“

127
0
Björgvin Sólberg Björgvinsson býr í Hlíðarendahverfinu. Hann óttast öryggi gangandi vegfarenda vegna stanslausrar umferðar vinnuvéla þar. Vísir/Ívar Fannar

Íbúar í Hlíðarendahverfi í Reykjavík hafa miklar áhyggjur af umferð stórvirkra vinnuvéla um götur hverfisins. Fjöldi barna streymir inn og út úr hverfinu á hverjum degi og neyðist stundum til að ganga á götunni.

<>

Í hverfinu eru um sjö hundruð íbúðir og stefnt er að því að reisa níu hundruð til viðbótar. Vinnusvæði má finna bæði norðvestan og norðaustan við hverfið.

Lítið um merkingar
Um götur þessa litla hverfis er ekið um á fjölmörgum stórvirkum vinnuvélum bróðurpart dags. Íbúar þar hafa áhyggjur af öryggi barna og annarra gangandi vegfaranda og segja öryggi þeirra ekki tryggt.

„Það eru engar merkingar, það er engin lokun hérna. Maður spyr sig hvaða undirbúningsvinna hafi verið gerð varðandi öryggi í kringum vinnusvæðin,“ segir Björgvin Sólberg Björgvinsson, íbúi í hverfinu.

Áhættumat fyrir íbúa
Það er enginn skóli í hverfinu en íþróttafélagið Valur er með aðsetur þar. Því er stöðugur straumur barna þar alla daga.

Í fréttinni hér fyrir ofan er sýndur gangstéttarkafli þar sem búið er að setja upp girðingu beggja vegna við götuna. Þeir sem labba þar þurfa því að ganga á götunni til að komast leiðar sinnar. Þar sem gengið er á götunni er svo innkeyrsla inn á vinnusvæði þar sem fjölmargar vinnuvélar aka dagsdaglega.

„Við krefjumst þess að Reykjavíkurborg framkvæmi áhættumat á hættum sem verða af vinnusvæðum eins og þessum inni í íbúabyggð,“ segir Björgvin.

Einhver þurfi að bregðast við
Íbúar hafa ítrekað reynt að krefja borgina og íþróttafélagið um að tryggja öryggi fólks en lítið gerst.

„Staðan er bara sú fyrir okkur að það verður slys hérna. Það hafa komið upp tilvik þar sem krakkar hafa þurft að hoppa frá. Það datt strákur af hjóli hérna í síðustu viku og ég held að grafan hafi aldrei séð hann. Við erum að horfa upp á það að það verður slys. Það verður einhver að bregðast við og það þarf að gera það strax,“ segir Björgvin.

Heimild: Visir.is