Skeiða- og Gnúpverjahreppur býður út iðnmeistara við byggingu á íþróttamiðstöð í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Útboðin eru þrjú sjálfstæð útboð:
Rafmagn – iðnmeistari
Pípulagnir – iðnmeistari
Múrari – iðnmeistari
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með föstudeginum 18. október 2024. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Harald Þór Jónsson með tölvupósti á netfangið haraldur@skeidgnup.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og óska eftir hvaða útboð þeir vilja fá upplýsingar um og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps Árnesi, 804 Selfossi fyrir kl. 12:00 mánudaginn 4. nóvember 2024, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Heimild: Skeidgnup.is