Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Fyrsti hluti sjálfvirks sorp – og lín flutningakerfis í meðferðarkjarna kominn til...

Fyrsti hluti sjálfvirks sorp – og lín flutningakerfis í meðferðarkjarna kominn til landsins

90
0
Mynd: NLSH.is

Sænski framleiðandinn Envac hefur hafið innflutning á sjálfvirkum flutningskerfum fyrir bæði sorp og lín í meðferðakjarna.

<>

Kerfin munu flytja sorp og lín eftir rörakerfi frá deildum og raða þeim i viðeigandi gáma og flutningsgrindur í sérbyggðu húsi.

Kerfin inn í meðferðarkjarna koma í 19 gámum/fletum og verður þeim komið fyrir í bílakjallara undir Sóleyjartorgi, þar til uppsetning á kerfunum hefst 2025.

Mynd: NLSH.is

„Það er mjög ánægjulegt og spennandi að fyrsti hluti innviða í meðferðarkjarnann er kominn til landsins og sjá fyrsta búnaðinn fara í uppsetningu,” segir Jens Hjaltalín Sverrisson, verkefnastjóri hjá NLSH.

Heimild: NLSH.is