Home Fréttir Í fréttum 01.11.2024 Dalvíkurbyggð. Endurbætur á Sundlaug Dalvíkur

01.11.2024 Dalvíkurbyggð. Endurbætur á Sundlaug Dalvíkur

67
0
Mynd; AVH

Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í endurbætur á Sundlaug Dalvíkur, Svarfaðarbraut 34.
Verkið felst í breytingum á laugarkari, flísalögn á sundlaug, pottum og vaðlaugum ásamt raflagnavinnu.

<>

Verktími er frá apríl til júní 2025.

Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með þriðjudeginum 1. október 2025.

Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir kl. 10:00 föstudaginn 1. nóvember nk. og verða tilboðin opnuð kl. 11:00 sama dag hjá AVH í Kaupangi við Mýrarveg Akureyri í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.