„Þarna voru náttúruverndarsamtök sem fóru af stað í lok ferilsins – þegar allt var búið að eiga sér stað, umsagnir um framkvæmdaleyfi og Guð má vita hvað, sem tók misserin öll.“
Niðurfelling framkvæmdaleyfis á flutningi Lyklafellslínu 1, raflínur sem voru yfir stærstu uppbyggingarhverfum Hafnarfjarðarbæjar í Skarðshlíð og Hamranesi, árið 2018 eftir kæru Hraunvina og Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands kostuðu bæjarfélagið að minnsta kosti 8 milljarða króna.
Þetta kom fram í máli Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga sem nú stendur yfir. „Þetta er varfærin tala, við skulum átta okkur á því.“
Uppbyggingin tafðist í þessum hverfum tafðist í um 3-4 ár að sögn Rósa. Ofangreind fjárhæð byggir á m.a. á útsvari og fasteignagjöldum sem bæjarfélagið hafði áætlað af þeim þúsundum íbúða í þessum hverfum á síðustu árum.
Eins þurfti Hafnarfjarðarbær að taka lán fyrir Skarðshlíðaskóla sem bæjarfélagið hafði áætlað að fjármagna að miklu leyti, í það minnsta fyrst um sinn, með lóðasölu.
„Niðurstaðan er að kæran og frostið sem henni fylgdi hafi kostað bæinn að minnsta kosti 8 milljarða króna. Þarna voru náttúruverndarsamtök sem fóru af stað í lok ferlisins – þegar allt var búið að eiga sér stað, umsagnir um framkvæmdaleyfi og Guð má vita hvað, sem tók misserin öll. Í lokin þegar allt er klappað og klárt þá gerist þetta.“
Heimild: Vb.is