Íris Guðnadóttir, einn landeigenda við Reynisfjöru, segir nýju bílastæðin bæta umferðaröryggi við þennan vinsæla ferðamannastað til muna. Búið er að malbika bílastæðin og merkja gönguleiðir á bílastæðin sjálf. Þá er einnig búið að gera göngustíg á milli bílastæða en um 300 metrar eru á milli.
„Nú er bara eftir lokafrágangur sem hefur ekki áhrif á umferð. Verkið gekk allt vel og við landeigendur þökkum tillitssemi og samstarfsvilja gesta og ferðaþjónustuaðila. Einnig þökkum við okkar frábæru verktökum: Framrás, Malbiksstöðinni, EFLU og Vegmálun GÍH,“ segir Íris í færslu á Facebook-síðu sinni.
Mikill fjöldi heimsækir Reynisfjöru daglega. Samkvæmt talningu Ferðamálastofu er meðalfjöldi ólíkur eftir mánuðum en í júlí voru þær til dæmis um 2.200 og 1.300 í maí. Í fyrra voru í heildina 538.608 heimsóknir í fjöruna og það sem af er ári, fram til september, hafa heimsóknirnar verið 376.650.
„Þetta er mikil öryggisbót. Það eru núna merktar gönguleiðir og fólk þarf núna bara að krossa akbraut einu sinni,“ segir Íris í samtali við fréttastofu. Landeigendur tóku sig saman í vor og ákváðu í sameiningu að fara í þessar framkvæmdir. Vinna hófst í september og lauk að mestu síðasta mánudag. Aðeins þurfti að loka bílastæðinu í tvo daga á meðan malbikun fór fram þar.
„Efla hjálpaði að hanna planið og við horfðum mikið til þess að bæta aðgengi gangandi vegfarenda og aðkomu fatlaðra. Það eru bílastæði fyrir hreyfihamlaða og bætt aðkoma fyrir fólk í hjólastól,“ segir Íris og að byggður hafi verið útsýnispallur við fjörukambinn.
„Þar er nóg pláss og hægt að fara á hjólastól. Það er svo í rauninni staðurinn þar sem fólk á að stoppa þegar það er rautt ljós. Það er magnaður staður til að horfa á því þá sérðu ölduna fara í stuðlabergið. Það er góður staður fyrir myndatöku.“
Íris segir nær alla heimsækja Reynisfjöru í björtu og því sé ekki lýsing á bílastæðunum. „Það er glit í málningunni á götunum þannig þú getur keyrt í burtu.“
Heimild: Visir.is