Home Fréttir Í fréttum 12.11.2024 Garðabær. LED lampa fyrir gatna- og stígalýsingu

12.11.2024 Garðabær. LED lampa fyrir gatna- og stígalýsingu

25
0
Mynd: Garðabær

LED lampa fyrir gatna- og stígalýsingu

<>

Tilboðið felst í að útvega 2.032 LED lampa í eldri hverfi í Garðabæ ásamt og með í ný hverfi sem verið er að reisa.

Svæðið sem lamparnir eru ætlaðir í samanstendur af göngustígum, húsagötum og safn- og tengigötum.

Gerðar eru kröfur til þess að bjóðandi bjóði lampa sem uppfylla útlitskröfur auk tæknilegra og ljóstæknilegra eiginleika og komi vel út í lífferilskostnaðargreiningu, LCC.

Samningur nær til þriggja ára.  Frávikstilboð verða ekki leyfð.

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, reynir@liska.is og verður hægt að nálgast gögn frá og með 8. október 2024.

Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti til gudjon@liska.is.   Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði.  Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 10:00 þriðjudaginn 12. nóvember 2024

Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.  Við opnun tilboða verða lesin upp nöfn bjóðenda og heildarlífsferilskostnaður af tilboðseyðublaði.

Heimild: Garðabær