Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 18.10.2024 SHS. Elja æfingahús – Skútahraun 6, Hafnarfirði

18.10.2024 SHS. Elja æfingahús – Skútahraun 6, Hafnarfirði

57
0
Mynd: Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs. (SHS) óskar eftir tilboðum verktaka í utanhúsfrágang æfingarhúsnæðis SHS og Slysavarnafélagsins Landsbjargar á lóð Skútahrauns 6 í Hafnarfirði. Klæða á fyrirliggjandi stálgáma, setja á þá þak og byggja upp vatnshelda svalabyggingu.

<>

Helstu verkþættir eru:

  1. Loka á milli efri gáma með léttum veggjum og gólfi ásamt því að setja timburþak yfir gáma.
  2. Trévirki klætt með krossvið og þakpappa ofan á neðri gáma.
  3. Opna á milli gáma og gera nýjan stiga að innan.
  4. Utanhúsfrágangur og klæðningar.
  5. Gönguristar úr stáli ofan á neðri gáma ásamt stálhandriðum.
  6. Uppsetning stálstiga í kringum bygginguna.

Útboðsgögn verða aðgengileg í rafrænu útboðskerfi á slóðinni vsb.ajoursystem.net/tender frá og með fimmtudeginum 3. október 2024.

Tilboðum og öllum fylgigögnum skal skilað rafrænt í sama kerfi eigi síðar en föstudaginn 18. október 2024 kl. 11:00.

Verklok eru 3. mars 2025.

Útboðsgögn afhent: 07.10.2024 kl. 13:00
Skilafrestur 18.10.2024 kl. 11:00
Opnun tilboða: 18.10.2024 kl. 11:00

Sjá frekar.