Home Fréttir Í fréttum Íbúðir og atvinnulíf í Vesturbugt

Íbúðir og atvinnulíf í Vesturbugt

26
0
Mynd: Reykjavik.is

Tilboð félagsins M3 fasteignaþróunar ehf. í byggingarrétt við Vesturbugt við Gömlu höfnina í Reykjavík var samþykkt af borgarráði í síðustu viku.

<>

Lóðirnar í Vesturbugt eru Hlésgata 1 og 2. Heimilt er að byggja allt að 177 íbúðir í 2-5 hæða húsum auk bílakjallara og um 1.420 fermetra af atvinnuhúsnæði. Byggingarréttur er seldur á rúmlega 2,8 milljarða og álögð gatnagerðargjöld eru um 330 milljónir. Greiðslur til Reykjavíkurborgar nema því um 3,2 milljörðum króna.

Fjórðungur íbúða verður leiguíbúðir
Að lágmarki 25% íbúða á byggingarreitnum eiga að vera leiguíbúðir samkvæmt deiliskipulagi. Þar af eiga Félagsbústaðir kauprétt á allt að 14 íbúðum og Félagsstofnun stúdenta á kauprétt á allt að 50 íbúðum.

Framkvæmdir á næsta ári
Uppbygging í Vesturbugt hefur verið nokkuð lengi á dagskrá en byggingarétturinn var boðinn út að nýju í júlí og var M3 fasteignaþróun ehf. hæstbjóðandi og nú hefur verið gengið frá samningum við félagið.

„Það er frábært að geta nú loksins hafið hönnun og byrjað að skipuleggja uppbyggingu á þessum einstöku byggingarreitum við vesturhöfnina við miðborg Reykjavíkur,“ segir Örn V. Kjartansson framkvæmdastjóri M3 fasteignaþróunar ehf.

„Segja má að þetta sé síðasti þéttingarreiturinn í miðborginni og í raun einstakt að geta boðið íbúðir til sölu þetta nálægt gömlu höfninni í Reykjavík. Ef vel gengur með hönnun má gera ráð fyrir að framkvæmdir hefjist snemma vors á næsta ári“.

Heimild: Reykjavik.is