Home Fréttir Í fréttum Unnið við innanhússfrágang í bílastæða – og tæknihúsi

Unnið við innanhússfrágang í bílastæða – og tæknihúsi

72
0
Mynd: NLSH.is

Uppsteypu bílastæða og tæknihússins er lokið. Vinna við innanhúsfrágang er í fullum gangi.

<>

„Verið er að einangra og múra veggi tæknihluta hússins. Einnig er verktaki að slípa veggi og plötur.

Unnið er í rafmagni og pípulögnum. Unnið er að uppsetningu vatnsúðakerfis.Verktaki er að fylla yfir lagnagang er liggur á milli bílastæða og tæknihússins og rannsóknahúss.

Unnið er að utanhúsfrágangi við tengigang norður sem mun liggja frá bílastæðahluta hússins að rannsóknahúsi og meðferðarkjarna.

Stefnt er að því að taka bílastæðahluta hússins í notkun fyrri hluta árs 2025. Nú er verið að undirbúa vinnu við lagnir sem fara eiga í Hvannargötu er liggur niður með austurhlið hússins.

Gera þarf götuna ökufæra áður en hægt verður að opna bílastæðahluta hússins,“ segir Sigurjón Sigurjónsson verkefnastjóri hjá NLSH.

Heimild: NLSH.is