Home Fréttir Í fréttum 08.10.2024 Ísafjarðarbær. Snjómokstur á Suðureyri

08.10.2024 Ísafjarðarbær. Snjómokstur á Suðureyri

42
0
Mynd: Ísafjarðarbær

Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í snjómokstur á Suðureyri fyrir tímabilið 2024-2027, með möguleika á framlengingu um allt að 2 ár.

<>

Snjómoksturinn skal framkvæmdur í samræmi við snjómoksturreglur sveitarfélagsins, sem tryggja að allar helstu götur, bifreiðastæði og aðkomuleiðir verði mokaðar í samræmi við forgangsröðun og vinnubrögð sem koma fram í reglum Ísafjarðarbæjar.

Helstu dagsetningar:

  • Útboð auglýst: 23. september 2024
  • Fyrirspurnarfrestur: 3. október 2024
  • Lokafrestur til að skila tilboðum: 8. október 2024
  • Opnun tilboða: 9. október 2024
  • Upphaf þjónustu: 1. október ár hvert, frá 2024 til 2027
  • Lok þjónustu: 30. apríl ár hvert, frá 2025 til 2027

Frekari upplýsingar og útboðsgögn:
Útboðsgögnin skal nálgast beint hjá umsjónarmanni útboðsins, Eyþóri Guðmundssyni, með því að senda tölvupóst á eythorgu@isafjordur.is.

Skil á tilboðum:
Tilboðum skal skila á rafrænu formi á netfangið eythorgu@isafjordur.is, merkt Tilboð í snjómokstur Suðureyri. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað.

Heimild: Ísafjarðarbær