Norðurorka óskar eftir tilboðum í vegagerð að fyrirhuguðu jarðhitasvæði við Ytri Haga í Dalvíkurbyggð við Eyjafjörð. Gögn eru afhent með að óska eftir þeim á netfangið rab@verkis.is
Verkið felst í gerð nýs vegar frá heimreið Ytri Haga að dælustöð og borplani auk nýrrar heimreiðar að Ytri Haga eins og uppdrættir sýna.
Innifalið í verkinu er lagning kaldavatns- og hitaveitulagna auk tengdra hliðarverka eins og sett er fram á uppdráttum og í magnskrá verksins.
Útboðsgögn afhent: | 20.09.2024 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 08.10.2024 kl. 11:00 |
Opnun tilboða: | 08.10.2024 kl. 11:00 |