Mannvirkjastofnun norska varnarmálaráðuneytisins (Forsvarsbygg) óskar eftir þátttakendum í útboð á endurnýjun á RO-RO bryggju á Bogen flotastöðinni í norður-Noregi. Útboðið er opið öllum aðildaþjóðum Atlantshafsbandalagsins og fylgir „National Competitive Bidding Plus“ (NCB+) fyrirkomulagi Bandalagsins.
Verkþættir útoðsins eru meðal annars:
- Viðgerð burðarvirkis í kringum bryggju, þ.m.t. viðgerð véla- og tæknibúnaðar
- Uppsetning katþósks varnarbúnaðar
- Endurnýjun fríholta/fendera
- Endurnýjun viðlegukants
- Endurnýjun malbiks og annar yfirborðsfrágangur
- Tengingar við aflgjafa og önnur rafmagnsvinna
- Önnur tilheyrandi jarðvinna
Listi verkþátta er ekki tæmandi
Áætlað er að samningur sé undirritaður í Desember 2024 og að framkvæmdir hefjist stuttu síðar. Verklok eru áætluð í Desember 2026.
Fyrirtæki sem hafa áhuga þurfa að gangast forskoðun áður en þeim er boðið að skoða verkskjöl hér: Bogen – Refurbish NATO RORO Jetty RORO Jetty – Invitation to tender
Útboðsauglýsingu má finna hér https://ted.europa.eu/en/notice/-/detail/542715-2024