Home Fréttir Í fréttum Riftunin lögmæt – Stórfelldar vanefndir

Riftunin lögmæt – Stórfelldar vanefndir

88
0
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, var fyrirsvarsmaður bæjarins í málinu. Samsett mynd/mbl.is/Hákon Pálsson

Gerðardóm­ur hef­ur úr­sk­urðað að Kópa­vogs­bær hafi verið í rétti þegar hann rifti samn­ingi við verk­taka­fyr­ir­tækið Rizz­ani de Eccher eft­ir að upp komu gall­ar á verki verk­tak­ans við upp­bygg­ingu á Kárs­nesskóla.

<>

Ákvörðun um að rifta samn­ingi við verk­taka­fyr­ir­tækið í júní á síðasta ári var gagn­rýnd af bæj­ar­full­trú­um inn­an minni­hluta bæj­ar­stjórn­ar Kópa­vogs, meðal ann­ars sök­um þess að rift­un­in gæti kallað á skaðabóta­skyldu.

Nú er ljóst að ákvörðunin var lög­mæt og er verk­taka­fyr­ir­tæk­inu gert að greiða máls­kostnað Kópa­vogs­bæj­ar upp á rúm­lega 44 millj­ón­ir króna.

Verktak­inn sýndi ít­rekað vilja- og getu­leysi

Í dómn­um seg­ir að verktak­inn hafi borið ábyrgð á stór­felld­um og ít­rekuðum töf­um á verk­fram­kvæmd­un­um við bygg­ingu Kárs­nesskóla.

Þá kem­ur fram að verktak­inn hafi sýnt ít­rekað vilja- og getu­leysi til að bæta úr viðvar­andi skorti á mannafla og bæta úr gæðafrávik­um.

„Jafn­framt að veru­leg frá­vik hafi verið í gæðum verks­ins sem lýstu sér fyrst og fremst í mikl­um raka og myglu, sem búið var að loka inni á stöðum í bygg­ing­unni sem ekki var hægt að hreinsa, nema með því að rífa upp all­an frá­gang á þeim stöðum.

Í skiln­ingi 3. mgr. 12. gr. verk­samn­ings aðila var hér um að ræða bæði stór­felld­ar og ít­rekaðar vanefnd­ir af hálfu varn­araðila [verkat­ans], sem sam­kvæmt gögn­um máls­ins sýndi ít­rekað vilja- og getu­leysi til að bæta úr viðvar­andi skorti á mannafla og bæta úr gæðafrávik­um, þótt hon­um hafi ít­rekað verið gef­inn kost­ur á því og kraf­inn um það,“ seg­ir í úr­sk­urðinum.

Odd­viti Viðreisn­ar var á móti rift­un­inni

Eins og fyrr seg­ir þá var rift­un­in ekki óum­deild og odd­viti Viðreisn­ar í Kópa­vogi, Theo­dóra S. Þor­steins­dótt­ir, hafnaði því að veita bæn­um heim­ild til rift­un­ar.

„Ég hafnaði heim­ild til rift­un­ar því eins og mál­um er háttað tel ég það betri kost að reyna til þraut­ar að viðhalda samn­ings­sam­bandi við verk­tak­ann á grund­velli verk­samn­ings,“ sagði Theo­dóra í sam­tali við Morg­un­blaðið í maí á síðasta ári.

Eini kost­ur­inn í stöðunni var að rifta

Ásdís Kristjáns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Kópa­vogs, sagði í sam­tali við mbl.is í síðasta mánuði að það hafi verið eini kost­ur­inn í stöðunni að rifta samn­ingn­um.

„Húsið lá und­ir skemmd­um, lít­il sem eng­in fram­vinda var á verkstað og verktak­inn stóð ekki í skil­um við und­ir­verk­taka sem voru farn­ir af verkstað. Það kom aldrei til greina að bjóða skóla­börn­um upp á nýtt skóla­hús­næði sem ekki stæðust okk­ar gæðakröf­ur.“

Heimild: Mbl.is