Home Fréttir Í fréttum Sameiginlegt útboð í brú og jöfnunarstöð á Akureyri

Sameiginlegt útboð í brú og jöfnunarstöð á Akureyri

91
0
Aftur skal verkið boðið út.

Verkefni við smíði nýrrar brúar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur yfir Glerá, Skarðshlíð-Glerártorg verður boðið út að nýju í vetur.

<>

Eins og Vikublaðið sagði frá á dögunum var verkið var boðið út í sumar en engin tilboð bárust þá.

Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda segir að auk brúar fyrir Glerár muni útboðið innihalda uppbyggingu á jöfnunarstöð fyrir Strætisvagna Akureyrar sem áætluð er við syðri brúarendann.

Heimild: Vikubladid.is