Home Fréttir Í fréttum Kaupendur steypa sér í skuldir og treysta á vaxtalækkanir

Kaupendur steypa sér í skuldir og treysta á vaxtalækkanir

55
0
Ekki hefur tekist að halda í við markmið stjórnvalda um uppbyggingu íbúða undanfarin misseri. Því er eftirspurn eftir íbúðum, sem áður, meiri en framboðið. Jóhannes Jónsson – RÚV

Formaður Félags fasteignasala segir háa stýrivexti halda áfram að bíta húsnæðiseigendur. Margir kaupendur skuldsetji sig meira en áður og treysti því að vextirnir taki brátt að lækka.

<>

Talsverð eftirspurn er eftir fasteignum á markaði þrátt fyrir háa stýrivexti. Formaður Félags fasteignasala segir kaupendur auka við sig skuldir og hafi væntingar um að vextir taki brátt að lækka á ný.

„Það er eftirspurnarþrýstingur í svona erfiðum aðstæðum sem segir okkur, eða það má eiginlega segja að markaðurinn sé í jafnvægi í dulargervi af því að ef aðstæðurnar væru betri á markaðnum þá væri þrýstingurinn enn þá meiri“, sagði Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.

Monika Hjálmtýsdóttir, formaður félags fasteignasala. Mynd úr safni.
RUV

Spenna á markaðnum þrátt fyrir háa vexti í heilt ár
Hún segir ákveðna spennu á markaðnum þrátt fyrir háa stýrivexti en það skýrist fyrst og fremst af íbúðavöntun.

Kaupendur um þessar mundir eru aðallega þeir sem eru að skipta um húsnæði – fyrstu kaupendur sitja eftir og bíða eftir hagstæðari kjörum.

Hún segir fleiri taka verðtryggð lán, margir skuldsetji sig meira en áður og treysti því að stýrivextirnir, sem hafa haldist í 9,25 prósentum í tólf mánuði, taki brátt að lækka. Því megi búast við þenslu á markaðnum þegar það gerist

„Fólk er auðvitað að stækka við sig með því að skuldsetja sig af því það eru þessar væntingar sem hafa svo mikið að segja á markaðnum. Fólk væntir þess að ástandið muni batna, vextir lækka og fasteignaverð hækka.“

Heimild: Ruv.is