Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Norðursvæði og Austursvæði árið 2016.
Helstu magntölur:
Útlögn malbiks | 15.376 | m2 |
Hjólfarafylling | 7.144 | m2 |
Fræsing | 1.492 | m2 |
Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2016.
Útboðsgögnin eru seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 3. maí 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 18. maí 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.