Sveitarfélagið Árborg leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt lóða fyrir íbúðarhúsnæði, á eftirtöldum lóðum:
Lóðirnar eiga það sameiginlegt að vera staðsettar á grónum svæðum í íbúðahverfum á Selfossi eða Eyrarbakka. Allar lóðir eru einbýlishúsalóðir og heimild fyrir einni íbúð á hverri lóð. Lóðirnar eru tilbúnar til afhendingar.
Lóðirnar eru eftirfarandi:
- Lágengi 10, 800 Selfoss
- Reyrhagi 8, 800 Selfoss
- Stekkholt 22, 800 Selfoss
- Álfsstétt 1, 820 Eyrarbakki
- Eyrargata 2, 820 Eyrarbakki
- Búðarstígur 18, 820 Eyrarbakki
- Nesbrú 2, 820 Eyrarbakki
Tilboð í byggingarrétt á lóðunum ásamt umbeðnum fylgigögnum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour innan auglýsts skilafrest, sem er kl. 13:00 föstudaginn 06. september 2024.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur er liðinn. Í kjölfar opnunar verður tilboðsgjöfum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Niðurstaða útboðs verður birt á vef Árborgar.