Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Steypuvinna hafin við kornþurrkstöð við Ytra-Laugaland

Steypuvinna hafin við kornþurrkstöð við Ytra-Laugaland

53
0
Á framkvæmdasvæði kornþurrkstöðvarinnar í Eyjafirði á þriðjudaginn. Mynd / Sigurgeir Sigurgeirsson

Í vikunni var lokið við að steypa gólfplötuna undir kornþurrkstöðina sem eyfirskir bændur eru að byggja við Ytra-Laugaland.

<>

Hermann Ingi Gunnarsson, bóndi á Klauf í Eyjafjarðarsveit, segir verkið vera nánast á áætlun. Byggingarefnið, sem sé forsniðið límtré og yleiningar tafðist aðeins, en eigi að skila sér á næstu tveimur vikum.

Það komi ekki að sök, því þá gefist færi á að koma vélbúnaðinum fyrir sem berist á næstu dögum. Ef allt gengur eftir gerir Hermann ráð fyrir að hægt verði að ræsa búnaðinn í lok september. Það sé í tæka tíð fyrir þreskingu, sem tefst vegna kulda í vor.

„Það eru helvíti öflugir menn og konur með okkur og við vinnum hérna dag og nótt og erum í heyskap í dauða tímanum þar á milli,“ segir Hermann, en stærstur hluti verksins sé unninn af bændunum sem eiga kornþurrkstöðina.

Vinir og ættingjar séu kallaðir til og segir Hermann að þetta sé félagslegt verkefni eins og tíðkaðist áður. „Ég myndi segja að þetta séu fimmtán manns sem eru í reglulegri vinnu. Svo hefur þetta farið upp í töluvert fleiri á góðum dögum, þannig að það er oft hasar.“

Það sem liggi fyrir á allra næstu dögum á meðan beðið sé eftir frekari aðföngum séu ýmis minni verk í kringum húsið, eins og að leggja dren, keyra möl og jafna plön.

Norðurorka sé jafnframt að vinna við að tengja afkastamikla heitavatnslögn til og frá stöðinni. Þá eigi eftir að steypa undirstöður fyrir þurrkarann, sem verður að hluta til utan við bygginguna.

Heimild: Bbl.is