Home Fréttir Í fréttum Malar­vagn kramdi bíl­stjóra­hús flutninga­bíls

Malar­vagn kramdi bíl­stjóra­hús flutninga­bíls

127
0
Slökkvilið- og sjúkraflutningamenn frá Brunavörnum Suðurnesja voru sendir á vettvang á sjötta tímanum. KACPER AGNAR KOZLOWSKI

Pallur flutningabíls gaf sig í Grjótási í Reykjanesbæ með þeim afleiðingum að malarvagn féll á bílstjórahús bílsins.

<>

Ökumaður var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til athugunar en slapp með minniháttar meiðsli, samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesja.

Lögregla, slökkvilið og sjúkrabíll fór á vettvang þegar tilkynning barst um atvikið á fimmta tímanum nú síðdegis.

Ökumaður flutningabílsins er sagður hafa sloppið vel.
KACPER AGNAR KOZLOWSKI

Heimild: Visir.is