F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Úlfarsárdalur – Stækkun hverfis – Umhverfisfrágangur 2024 – Urðartorg, útboð nr. 16061.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Framkvæmdin felur í sér yfirborðsfrágang á norðvesturhluta Urðartorgs og gangstétt við Skyggnisbraut. Urðartorg er staðsett á gatnamótum Skyggnisbrautar og Rökkvatjarnar. Yfirborð torgsins og gangstétt verða hellulögð. Torgið verður tengt núverandi lóðum með annars vegar steyptum tröppum og hins vegar tröppum úr timbri ásamt setbekkjum. Á torginu verða gróðurbeð úr stáli og bekkir úr timbri og stáli. Gera þarf ofanvatnsrás meðfram Rökkvatjörn. Einnig þarf að setja upp lýsingu á torginu bæði ljósastaura og lýsingu í bekkjum.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
- Upprif og förgun á malbiki og kantsteini núverandi
- Upprif og förgun á núverandi hellulögn
- Uppgreftri fyrir veitulagnir
- Fullnaðarfrágangur fyllinga undir götu og gangstéttar
- Fullnaðarfrágangur fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og raflagna
- Fullnaðarfrágangur hellulagnar og kantsteina
- Fullnaðarfrágangur blágrænna beða
- Fullnaðarfrágangur götulýsingar
Helstu magntölur verksins eru:
- Upprif malbiks og hella 1.400 m
- Púkkmulningur 600 m2
- Jarðvinna fyrir lagnir 700 m3
- Malbik 1.230 m2
- Hellur 900 m2
- Ecoraster 1.300 m2
- Fráveitulagnir 140 m
- Vatnslagnir 100 m
- Hitaveitulagnir 170 m
- Þökulögn 900 m2
- Gróðursetning planta 750 stk
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00: þann 12. ágúst 2024. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 27. ágúst 2024.