Búið er að bjarga þeim sem festust undir rústum hótels sem hrundi að hluta í bænum Kröv í vesturhluta Þýskalands í dag. Björgunaraðgerðir voru erfiðar, en um 250 manns komu að þeim.
Fjórtán manns voru á hótelinu þegar það hrundi. Fimm náðu að koma sér út og sjö var bjargað úr rústunum. Kona og karl létust í slysinu.
Í yfirlýsingu frá lögreglu kemur fram að ekki sé vitað hvers vegna byggingin hrundi. Rannsókn á atvikinu er nú hafin.
Heimild: Mbl.is