Fjögur tilboð bárust í verkefnið viðhald gatna og stétta 2024 hjá Akraneskaupstað.
Verkefnin sem á að vinna á þessu ári eru:
- Yfirlögn malbiks á Leynisbraut.
- Endurgerð yfirborðs götu neðst á Laugarbraut
- Hönnun á götum og stígum vegna endurgerðar Kirkjubrautar milli Háholts og Stillholts.
Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var rétt tæplega 157 milljónir kr.
Lægsta tilboðið var tæplega 143 milljónir kr, sem er um 9% undir kostnaðaráætlun.
Skipulags – og umhverfisráð hefur samþykkt að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Heimlid: Skagafrettir.is