Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Steyptu í rúman sólarhring

Steyptu í rúman sólarhring

123
0
Mikið gekk á þegar fyrri hluti brúarinnar var steyptur. Unnið var sleitulaust í rúman sólarhring. Brúin verður fullgerð um 250 metrar. Um 90 manns lögðu hönd á plóg. Ístak – Aron Örn Karlsson

Starfsmenn á vegum Ístaks stóðu í ströngu í fyrradag og í gær þegar þeir steyptu fyrri hluta brúar yfir Hornafjarðarfljót. Reiknað er með að hinn hlutinn verði steyptur eftir um þrjá mánuði. Samtals tóku um 90 manns þátt í að koma steypu í mótin.

<>

Umfangsmiklar vegaframkvæmdir hafa staðið yfir í Hornafirði þar sem fjórar brýr eru í smíðum samtímis. Með tilkomu þeirra styttist hringvegurinn um tólf kílómetra. Heildarkostnaður er um níu milljarðar króna.

Um 1.200 rúmmetrar af steypu fóru í brúna og 90 tonn af stáli.
Ístak – Aron Örn Karlsson / Ístak

Brúin yfir Hornafjarðarfljót verður um 250 metra löng þegar hún verður fullkláruð. Áfanginn sem steyptur var í gær er rúmlega 140 metrar. Vinna hófst klukkan 14:00 í fyrradag og lauk um miðjan dag í gær, rúmlega sólarhring síðar. Aron Örn Karlsson, staðarstjóri Ístaks í Hornafirði, sagði í samtali við fréttastofu í gær að vinnan hefði gengið samkvæmt áætlun.

Heimild: Ruv.is